mánudagur, mars 24, 2008

Að hreyfa sig ekki

Eftir að hafa státað mig af því að vera farinn að hreyfa mig( sem var fyrir mánuði síðan ) þá hef ég ekki farið að lyfta né í sund. Aðallega hafa það verið veikindi sem hafa verið að ganga frá mér og krökkunum, en Bína hefur sloppið nokkuð vel í gegnum þetta veikindatímabil síðustu vikna( sjö, níu, þrettán ). Síðan fluttist saumaklúbburinn hjá "skvísunum" yfir á þriðjudag um daginn. Ekki það að skilja að ég taki þátt í einhverjum saumaklúbb hjá einhverjum "skvísum" en einhver varð að passa að þessir gríslingar sem leika hér lausum halda fengju eitthvað að borða og færu í háttinn á meðan "skvísan" á heimilinu fór og hitti hinar "skvísu" vinkonur sínr. En nú fer ég að drattast aftur af stað, enda ekki seinna vænna að nýta þetta hálfsárs kort áður en það rennur út...nú þarf sumarið bara að fara að kíkja svo við komumst í sund ;)

2 ummæli:

Bína sagði...

Hver fór að lyfta í gær en kom aftur heim af því það var svo kalt að taka bensín?? hmmmm....

Svo erum við víst skvísur - ekki innan gæsalappa. :oP

Logi Helgu sagði...

Jú jú, hafði lítinn áhuga eftir að hafa staðið út í kuldanum og búinn að dæla bensíni á okurverði...finnst eins og það taki lengri tíma að dæla bensíni í dag, en kanski bara af því það er orðið svo dýrt. Man f. örfáum árum þegar maður fillti fyrir rétt yfir 4þ kall, en nú er það að komast í 7þ kallinnn.

Ó, eru þið skvísur þá gæsir ;)