föstudagur, nóvember 05, 2010

Lucky Luke

Úrslitakvöldið í 2. mótinu hjá Bjólfi var kvöld... Mótið fór ekki vel af stað hjá mér en á fyrsta kvöldi var ég 3ji maður út og var ekki vel settur þ.s. það voru bara 3 kvöld. Annað kvöldið gekk mun betur og með sigri náði að komast uppí annað sætið, en þó 4 stigum á eftir Iðnaðarmanninum. Í kvöld byrjaði kvöldið á því að ég tvöfaldaði mig fljótlega á kostnað Elvis, sem var einstaklega óheppinn og endaði með að hann kvaddi þennan heim. Eftir það var ég nokkuð vel settur og þegar Massinn fékk A10 fulla húsið var ég heldur betur vel settur með AQ fulla húsið og náði að byggja vel í haginn fyrir lokin. 99 gerði sig tvisvar, í fyrra skiptið hærra par en floppspil og græddi vel á því en í seinna skiptið voru níurnar ekki sigurstranglegar móti drollunum hans Eika. En vitir menn, nía í turn gerði út um Eika og var þá staðan orðin mjög vænlega fyrir endaleikinn. Ég og Massinn áttum smá rimmu undir lokin sem ég hafði svo fyrir rest og tryggði mér þannig efsta sætið í mótinu. Ekki slæmt að ná að stela efsta sætinu , en á fyrsta mótinu stalst ég í fyrsta sætið með að jafna Bósa að stigum þó svo að ég mætti bara á 3 af 4 kvöldum í því móti.

Bjólfur poker club
Lomminn á mikið lof skilið fyrir frábært utanumhald. Þetta er komið aðeins lengra en 5 spila pókerkvöld sem reglulega voru tekin yfir bjór fyrir aldamótin og á hann heiðurinn af þessum félagsskap.

2 ummæli:

Elvar Snær sagði...

Var að rekast á þessa síðu hjá þér.

Þvílíkur grobbpistill! Það verður svo sem ekki af þér tekið að þú hefur komið, séð og sigrað þessar tvær fyrstu mótaraðir með góðri spilamennsku en líka fáránlegri heppni á réttum augnablikum. Ég þekki Bínu ekki svo mikið en hún lítur ekkert allt of vel út miðað við þessa spilaheppni ;-) hehe

Takk fyrir hrósið.

Logi Helgu sagði...

He he, já ég er ekkert að gera lítið úr því hérna að hafa náð fyrsta sætinu í 2 mótum í röð þó svo að heppnin hafi verið mér mjög hliðholl.

Ég held reyndar að heppini í spilum og óheppni í ástum sé nú bara komið af því að á meðan maður spilar gerir það lítið fyrir ástina...þannig að þeir sem helga lífið spilamennskunni eru of uppteknir af því ;)