Fyrir 3 árum eignaðist ég
cube og var hinn ánægðasti en nú er hann horfinn af heimilinu. Ég ákvað að það væri tími til kominn að taka til á heimilinu og hætta að safna "dóti". Leyfa einhverjum öðrum að njóta hans enda var hann bara að safna ryki á bakvið sófa og notaður í lítið annað en að keyma gögn. Nýr eigandi sótti vélina og leið mér afskaplega vel að vita að hún fór til mikils makkamanns og safnara sem mun ábyggilega gera henni góð skil um ókomin ár.

Ágætt að byrja að taka til áður en þetta endar svona ;)