þriðjudagur, desember 09, 2008
Þrítugur
Notalegt að vera vakinn af fjölskyldunni sem kom færandi hendi með gjafir handa gamla manninum sem kominn er á fertugsaldurinn( merkilegt hvað það hljómar verra en að vera orðinn þrítugur ). Bjartur listamaður teiknaði mynd handa pabba sínum alveg eins og E.T. að hnykkla vöðvana. Sunna krútt hafði hjálpað til og Bína búin að setja í ramma svo myndin er tilbúin til að fara uppá vegg. Dagný brosti sýnu breiðasta í tilefni dagsins og morgunmaturinn tilbúinn þegar ég kom fram. Yndisleg börn, yndisleg unnusta, yndislegt líf ;)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Mmmm.... þú gleymir svo Hereford í kvöld nammnamm. í boði nonnogbegs;O)
Til hamingju með daginn Logi minn!
Njótið kvöldsins, slurp!!
Kv.
Berglind
Tillykke med fødselsdagen gamle mand, hvordan føles det at være 30 ? Kan du stadigvæk selv tage dit tøj på? Må I hygge jer i aften på Hereford SKÅL
Mvh. Balli
Æðislegt að fá tilboð á Hereford, takk kærlega B&N ;)
Skrifa ummæli