Ef ég væri fengi að ráða hvernig "nýtt Ísland" væri byggt upp væri aðal málið:
Kosningar, stjórnmálaflokkar og alþingiKosið væri um einstaklinga í ráðherrastóla ríkisstjórnar samhliða kostningu um stefnu ríkisstjórnar.
Ráðherrar vinna samkvæmt kosinni stefnu og bera fulla ábyrgð á þeim málaflokki sem þeirra ráðherrastóll ræður yfir.
Stefna væri áherslur í tilteknum málefnum lagðar fram af hverjum sem er, þ.m.t. stjórnmálaflokkum. Heildarstefna er mun auðveldari í kostningu heldur en að kjósa um mörg málefni hvert fyrir sig.
Alþingi væri lagt af. Engin ástæða til að halda uppi Alþingi ríkisstjórnin ræður för og gagnrýni yrði að koma annars staðar frá en úr ræðupúlti Alþingis...heilmikill launasparnaður þarna ;)
Í framhaldi væru fjárframlög auðvitað mjög takmörkuð til stjórnmálaflokka og frambjóðenda. Það myndi auðvelda nýjum hagsmunasamtökum og einstaklingum að bjóða fram.Síðan detta mér nú einhverjir hlutir strax í hug sem betur mættu vera á okkar litla landi:
Nýjan þjóðsöngÉg vil geta tekið undir með þjóðsöngum...og
ég vil að
allir hinir geti það líka.
RíkisútvarpiðLeggja niður afnotagjöld, innlent sjónvarpsefni, lítið um afþreyingu, endursýnt efni, fréttir...
MenntunMenntakerfið þarfnast mikillar endurskipulagningar.
Grunnskólar verða aftur settir undir ríkið.
Laun ríkisstarfsmannaAllir ríkisstarfsmenn hafa laun í hlutfalli við ráðherrakaup. Þannig geta ráðherrar ekki hækkað laun sín nema að hækka laun allra ríkisstarfsmanna.
Trú aðskilin ríkisrekstriTrú( kirkja og trúfélög ) verða með öllu aðskilin ríkisrekstri. Það eina sem mun lifa er að innheimta f. trúfélög verður með sama fyrirkomulagi og er í dag sem ríkið innheimtir með sköttum. Þyrfti bara að ákveða hvernig farið yrði með eigur sem kirkjur í dag hafa afnot af.
KvótakerfiðKvótakerfið verður afnumið. Fiskurinn umhverfis landið er eign lands og þjóðar!
Íslensk tungaHvers konar færðibækur um íslensku væru settur á netið án endurgjalds fyrir notkun. Ef á annað borð á að halda í þetta eyjamál er eins gott að gefa öllum kost á því að fara rétt með það og láta málið þróast á sterkum grunni.
SkatturFlatur ákveðinn %skattur á ALLT. Auðveldar alla útreikninga þ.s. aðeins er til einn skattaprósenta.
Efðaskattur verður felldur niður, enda hlýtur hann að fallast undir tvísköttun.
Ríkisrekin fyrirtækiRíkið getur, ef þurfa þykir, rekið fyrirtæki sem byggja á að halda uppi grunnþjónustu við landsmenn. S.s. ríkisbanki, ríkisverlsun.
ÁTVR verður lagt niður, áfengi verður selt í matvörubúðum. Eins gaman og mér finnst að hafa verslun sem selur bara áfengi þá er einokun bara glæpastafsemi yfirvaldsins.
Eftirlaunafrumvarið og biðlaunLeggja af eftirlaunafrumvarpið...stjórnmálamenn eru ekki merkilegri pappír en almenningur og þeir geta sætt sig við almennan lífeyrir eins og hver annar. Biðlaun og launagreiðslur í marga mánuði eftir uppsögn framkvæmdastjóra og annara sem þykjast bera ábyrgð verða felldar niður...þeir báru ábyrgð og stóðu ekki undir henni. Engin ástæða til að borga mönnum sem vikið er úr starfi til að hægt sé að endurreisa traust eða trú.
Opinn hugbúnaðurRíkisfyrirtæki noti einvörðungu opinn hugbúnað og sérlausnir sem búnar eru til skulu verða opnar lausnir.
Loka sendiráðumSamskipti við aðrar þjóðir skulu byggja á heimsóknum þeirra hingað ;)
Magrir virðast hafa hug á að koma fram breytingum á þessu litla skeri og hef ég rekist á
Lýðveldisbyltinguna og
Nýtt lýðveldi. Ég vona svo innilega að breytingar nái í gegn, þótt þær verði jafnvel ekki jafn miklar og margir vonast eftir.