Bjartur & Sunna fóru um helgina saman í Skátaferð. Þau voru hæst ánægð með þessa ferð og Sunnu fannst spennandi að fá að fara með Bjarti og honum fannst ábyggilega gott líka að hafa Sunnu með sér. Þau voru algört krútt þegar sagt var skilið við þau og líka þegar þau voru sótt...bara aðeins þreyttari =)
föstudagur, júní 27, 2014
Skátaferð
Bjartur & Sunna fóru um helgina saman í Skátaferð. Þau voru hæst ánægð með þessa ferð og Sunnu fannst spennandi að fá að fara með Bjarti og honum fannst ábyggilega gott líka að hafa Sunnu með sér. Þau voru algört krútt þegar sagt var skilið við þau og líka þegar þau voru sótt...bara aðeins þreyttari =)
fimmtudagur, júní 26, 2014
Íþróttaálfar
þriðjudagur, júní 17, 2014
Fjölskyldan í strætóferð

Það var fyrir 10 árum síðan sem við fórum fyrst með Bjart út í gönguferð á 17. júní og notuðum barnavagn í fyrsta sinn. Síðan þá hefur barnavagn og fleira alltaf verið með í för þangað til í ár. Nú var bara kallað að þeir sem ætluðu að vera með yrðu að klæða sig og síðan var farið út. Tókum reyndar regnhlífar með en það var til að þoli við úrhellið sem var spáð.
Þannig að við nældum okkur í strætó og fórum niður í bæ þar sem við reyndum að halda okkur þurrum og borða smá nammi þangað til að við heldum svo heim á leið aftur í strætó, full blaut en nokkuð ánægð með "ferðalagið" án barnavagns =)
laugardagur, júní 07, 2014
Dagný í fallturninn
Dagný er búin að vera að bíða svo lengi eftir að verða nógu stór til að fara í fallturninn í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum. Í dag var farið í þeirra von að hún væri orðin nógu stór. Vitir menn, hún náði yfir lágmarkið og mátti fara með þannig að þær systur fóru saman og ég beið niðri eftir þeim.Ánægjan var fljót að breytast þegar lagt var af stað upp og fljótlega breyttist það í meiri angist heldur en ánægju. Hún var ekki alveg sátt við þessa lífsreynslu...en merkilegt nokk fór hún nú aftur...en þá var nóg komið og engin ástæða til að gera sér meira af þessu =)
fimmtudagur, júní 05, 2014
Bjartur 10 ára
Bjartur var vakinn með tvemur Minecraft ljósum og nýja heyrnatólum í tilefni dagsins. Hann er hinn mesti tölvunörd eins og pabbi sinn og ekki leiður með að vakna við svona gjafir. Hann og Óli héldu uppá afmælið saman í Smáratívolí þar sem bekkurinn fór í LazerTag og var mikil hiti, sviti og keppnisskap í gangi þar eins og vera ber =)Hann er meira að segja kominn með sitt eigið blog og gaman að sjá hans hlið á málunum líka...en það er nú ekki allt sem ratar þarna inn hjá honum. Hann er víst að setja einhver video á youtube en það er ekki fyrir alla að horfa nema með link á það eins og sjá má á fréttinni hans um nýju heyrnatólin.
þriðjudagur, maí 27, 2014
Bjartur útskrifast úr Grábræðrum
Dagný útskrifast úr leikskólanum
mánudagur, maí 26, 2014
Skipulagsnördar
Ég og Sunna settum smá tilraun að mánaðar- & vikuskipulagi uppá vegg inná gangi hjá okkur í dag. Þannig að hægt er að sjá hvaða mánuður er í gangi og hvað er að gerast í vikunni...hugsa að þetta gæti verið þægilegt að sjá hvaða íþróttir eru hjá krökkunum og hvenær hver er að fara hvert...stundum (allt í lagi oft) get ég ekki munað þetta allt =)
laugardagur, maí 24, 2014
Vaskir menn
Alltaf haft mjög gaman af þessu sporti frá því í íþróttum hjá Unni Óskars í Seyðisfjarðaskóla...verður gaman að vita hvað maður nær að verða gamall enn að spila þetta?
mánudagur, maí 19, 2014
Fjórða Bjólfsárinu slúttað
Eins og alltaf er tímabilið hjá Bjólfi klárað með lokamóti í bústað. Það var góð helgi eins og alltaf áður. Ég náði mér í góðan svefn í "svefnbústaðnum" og þess á milli var skemmt sér við pókerspil, eldamennsku, át, heitan pott, sögur, söng í góðum félagssap. Skemmtilegur hópur sem ég er afskaplega ánægður með að vera hluti af =)Það er alltaf jafn gaman að koma heim á sunnudeginum og hitta aftur fjölskylduna...þó þetta séu 2 heilir dagar þá líða þeir svo fljótt að maður varla nær að hugsa heim nema þegar síminn er tekinn upp...en í dag er það með mynd þannig að maður fær að sjá fólkið og einfaldar það mikið =)
sunnudagur, maí 18, 2014
Stelpurnar góðar saman
Það er ótrúlegt hvað Sunna & Dagný eru góðar saman og hafa alltaf verið. Frá því að Dagný mætti á svæðið hefur Sunna alltaf verið svo góð við hana (eins og aðra) og Dagný hefur alltaf grætt svo mikið á því að eiga eldri systur sem hugsar svona vel um hana. Þær geta leikið sér næstum endalaust og stórmerkilegt hvað það verður lítið um árekstra...vonandi verður þetta alltaf svona yndilegt á milli þeirra =)
sunnudagur, maí 11, 2014
Helgarferð í Karrakot
Ég fór með krakkana á föstudegi þar sem Bína var að halda stelpupartý og það er nú alltaf gaman að koma í Karrakot. Á laugardeginum mættu og allar skvísurnar eftir að hafa skemmt sér kvöldið áður á meðan framkvæmdir við matjurtargarða voru komnar á fullt. Það var mokað vörubílshlassi af mold, klippir runnar, grafnar holur og ýmsu plantað. Allir voru duglegir að hjálpa til og finnst mér nú aldrei leiðinlegt að komast í smá garðvinnu. Dagný var mjög spennt að fá að sturta af ballinum og fékk svo að "stýra". Bjartur var duglegur að klippa og Sunna að hjálpa til. Sindri var nú ekki mikið að taka þátt...aðallega að frekjast í gönguferðinni eins og sjá má í maíalbúminu ;) Þannig að ferðin endaði lengri en eins dags ferð og var miklu betri fyrir vikið =)
föstudagur, maí 09, 2014
Afmælisdagur sætustu
Ég fór snemma á fætur til að finna til afmælisgjafir handa Bínu sem átti að fara með í rúmmið til hennar. Þegar ég kom fram heyrði ég umgang og fann Dagný að föndra perlur uppá strá. Hún hafði verið að gera það kvöldið áður og ég hafði sagt henni að hún yrði að vakna snemma til að klára...sem hún og gerði =)Bína hafði boðið í stelpupartý og ég fengið boð frá Þresti að koma í Karrakot með krakkana sem henta einstaklega vel.
Síðar um daginn keypti ég líka loksins hátalara inní stofuna þannig að skvísurnar gætu nú "blastað" aðeins í tónlistinni =) Hún Bína á það svo skilið að fá allt sem hana langar í...vildi að ég gæti gefið henni allan heiminn...en hún fær bara litla hluta af honum í einu =)
þriðjudagur, maí 06, 2014
Júróvisjón
Engin spurning með hverjum var haldið hér á bæ ;)
Alltaf notalegt fjölskyldustund að horfa á Eurovision. Þó svo í ár hafi ég meira verið upptekinn í að fylgjast með umræðunni á twitter um #12stig heldur en að fylgjast með sjónvarpsútsendingunni, enda margt skemmtilegt sem þar kemur fram ;)
Efnisorð:
fjölskyldan,
heimilið,
Ísland,
menning,
tónlist
mánudagur, maí 05, 2014
Snorri fékk Snorra
fimmtudagur, maí 01, 2014
Ballerínurnar á sama sviði

Þær væru flottar systurnar á sviðinu í Borgarleikhúsinu á uppskerusýningunni hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar. Sunna í þriðja sinn og Dagný nú loksins orðin nógu gömul til að taka þátt eftir að hafa horft á systur sína undanfarin ár úr salnum.
Þannig að við Bína, Bjartur & Bekka amma vorum í salnum og nutum þess að horfa á skvísurnar dansa í ár =)
föstudagur, apríl 25, 2014
Sárlasið, svikið & svekkt fólk sem engu ræður
S&S voru úrskurðuð með streptókokka í dag. Þeir hafa eitthvað verið að stríða okkur undanfarið og þau vissu að YoYo ís var í nágrenninu þegar við fórum á Domus Medica. Þannig að þau voru staðráðin í því að þau fengju ís...sérstaklega þegar búið var að dæma þau veik og þurfa að fá meðal...þá ættu þau nú ís inni bara fyrir að hafa farið svona veik í bíl.
Þau voru ekki jafn sátt þegar í ljós kom að ísbúiðin var ekki búin að opna snemma á föstudagsmorgni...í mótmælaskyni var sest niður í fýlu og ákveðið að sýna vanþóknun sína á því að engan ís var að fá =)
mánudagur, apríl 21, 2014
Páskar með Helgömmu

Það var afskaplega notalegt að hafa Helgömmu í heimsókn um páskana og krakkarnir ekki leiðir að hafa hana hjá sér frá morgni til kvölds.
Loksins voru egg lituð...gott ef það var ekki gert síðast með henni líka =)
Heimsóknir, leikir og gönguferðir og síðan voru allt í einu páskanir búnir og hún farin...allir náðu að halda sér nokkuð vel á flugvellinum og enginn neitt of illa grátinn eftir að kveðja hana ;)
fimmtudagur, apríl 17, 2014
Spil móti mannkyni

Cards Against Humanity er óþægilega skemmtielgt spil sem ég mæli eindregið með.
Það var skellt í prentun á góðan pappír í vinnunni og síðan tók smá tíma hjá mér & Bínu að klippa eitt kvöldið...alveg skemmtilegt hjá þeim að bjóða uppá það...en ég held ég mæli nú samt bara með því að kaupa þetta út í búð...þó það sé nálægt 10þ kallinum í Nexus þá er það alveg tímans virði ;)
En við fórum með heimagerða spjölin með okkur í matarboð í kvöld og það kemur alltaf nóg af skemmtilegum samsetningum fram sem kæta =)
þriðjudagur, apríl 15, 2014
Fjölskyldupáskabingó

Skruppum og keyptum ýmis verðlaun, buðum fjölskyldunni mín megin og krakkarnir stjórnuðu bingóleikjum. Þetta varð fínasta skemmtun þó svo að ekki hafi náðst að taka eitt varúlfaspil sem var búið að stinga uppá.
Bjartur fékk svo klippingu þar sem að Helgamma var á staðnum og þá mátti "snyrta" =)
Efnisorð:
Félagslíf,
fjölskyldan,
heimilið,
krakkarnir,
Ættin
laugardagur, apríl 12, 2014
Fjölskyldan í fiskabúrinu

Það er ekki á hverjum degi sem að öll systkinin eru saman komin...svona þegar ég tel mig með...og Dagur sendi staðgengil í sinn stað ;)
En það var annars raunin þegar við hittumst hjá Jóhanni&Hemmý og endaði fjölskyldan í Fiskabúrinu eftir að krakkarnir fóru að reka alla þar inn =)
Dagný hélt svo smá sýningu þar sem hún klæddi sig í mótorhjólagallann hans Snorra og minnti einna helst á ET.
Eftir þetta var síðan farið í ísbúðina þar sem asískir túristar misstu sig í að ljósmynda krakkana að borða ís...veit ekki hvað var svona merkilegt, að þau væru að fá sér ís í kuldanum...eða hvað það var?
miðvikudagur, apríl 09, 2014
Bingódagurinn mikli

Það var vel pakkað í Víðistaðaskóla þegar að páskabingóið var haldið í dag. Bjartur, Sunan & Dagný voru með í för og fundum við okkur pláss í glugganum. Það var mikill hiti & spenna í spilurum og ekki langt frá því að vera eins og á bestu rokktónleikum þegar að spurt var reglulega hvort ætti að spila eina tölu í viðbót =)
Það tókst að koma öllum verðlaunum út á endanum og við rétt komumst heim til að leggja af stað í páskabingó Skátanna seinnipartinn, þannig að þetta var sannarlega bingódagurinn mikli =)
Efnisorð:
Bjór,
Dagný,
grunnskólinn,
hafnarfjörður,
krakkarnir,
skátar,
sunna
sunnudagur, apríl 06, 2014
Svala frænka fermd
sunnudagur, mars 23, 2014
Fjallganga

Skelltum okkur uppá Ásfjall með alla og er þetta í fyrsta skiptið sem fjölskyldan fer í fjallgögnu. Það þurfti nú að hjálpa minnsta fólkinu en það var nú lítið mál þar sem ferðin er ekki löng þarna upp ;)
Þrátt fyrir kulda og vind var skemmtilegt að sjá fjörðinn frá þessu sjónarhorni og allir ánægðir með að hafa farið =)
föstudagur, mars 21, 2014
Pókerkvöld undirbúið

Fékk hjálp frá einum ungum & upprennandi (með sixpencara) við að undirbúa póker með Bjólfsmönnum.
Hann var síðan aftur á ferðinni daginn eftir...ekki alveg jafn prúður þegar enginn var að fylgjast með honum ;)
sunnudagur, mars 02, 2014
Nördabörn

Ekki leiðinlegt að til sé nóg af tölvum á heimilinu þegar allir vilja spila saman Minecraft ;)
Það hefur sína kosti að hafa undarlegan áhuga á að gera upp gamlar Apple tölvur. Þess vegna er ein auka til og ég gæti meira að segja dottið inn með þeim þar sem þau fá ekki að leika sér í vinnuvélinni "minni", enda er hún ekki "mín" ;)
miðvikudagur, febrúar 26, 2014
Agile námskeið

Hélt aftur Agile námskeið í samstarfi við Dokkuna. Að þessu sinni var það haldið hátt uppi á 18. hæð í Katrínarturni (hann heitir eitthvað annað en eftir að þeir skiptu um nafn á götunni/torginu get ég ekki munað það gamla ;)
Allt gekk vel, Bjartur var með í för og fékk að vera óáreittur í kaffistofunni á meðan við lékum okkur hinum megin við vegginn ;) Sjá meira á Agile síðunni minni.
föstudagur, febrúar 21, 2014
Spilahönnun

Hannaði spil fyrir Agile netið til notkunar í Planning Poker. Lagði niður þónokkrar hugmyndir og útfærði nokkrar áður en niðurstaðan varð til. Sem hönnunarlaun útbjó ég nokkra stokka merkta mér ;)
laugardagur, febrúar 08, 2014
UTMessan
Hugsmiðjan var með bás á UTMessunni í ár og Bjartur kom með mér. Honum finnst nú ekki leiðinlegt að hjálpa til við að hella uppá kaffi því hann fékk að aðstoða við það í fyrra líka.
Síðan gat hann skottast um og skoðað allt sem var í boði á meðan ég var að hella uppá og spjalla við gesti & gangandi.
Ég náði aðeins að kíkja með honum og koma honum í biðröðuna hjá CCP. Gaman að sjá hann sitjandi að leika sér í þrívíddarheimi...gaman hvað það er mikil tækni sem þau alast upp við.
Eftir daginn var hann alveg klár á hvað ætit að kaupa næst inná heimilið...þrívíddarprentara. Það hafði verið eitt það mest spennandi sem hann sá og varði miklum tíma í að fylgjast með því. Sjálfur er ég alveg sammála honum og hlakka til að þeir verði orðin almenningseign, margt sem mun breytast með tilkomu þeirra =)
sunnudagur, febrúar 02, 2014
Minecraft Bjartur
Bjartur fór á námskeið hjá Skema í Minecraft. Tveggja daga námskeið og frábært að læra aðeins meira og aðallega að hitta fleiri sem eru áhugasamir um þennan skemmtilega leik.
Þegar ég spurði hann eftir seinni daginn hvort hann hefði lært eitthvað sagði hann "Nei... eða jú eitt, að hinir strákarnir hlýða ekki" ;)
Hann er merkilega mikill nörd eins og pabbi sinn...veit ekki hvort það er gott fyrir hann að eiga svona nördapabba ;)
miðvikudagur, janúar 01, 2014
Pizzur & pítsur
Eitt af áhugamálunum er pizzugerð og einhverntíman fékk ég brauðstein frá Nonna&Begs sem kveiki aðeins meira í þessu áhugamáli. Steininn var ég reyndar fljótur að brjóta, virtist ekki þola hitann sem ég vildi hafa hann á, og þá var fjárfest í borðofni sem rúmar eina pizzu og hefur verið mikið notaður.
Í 35 á afmælisgjöf fékk ég svo annan, ásamt flottum pizzaskera og bjór...hvað þarf maður meira ;)
Ekki var þó nóg með það heldur rakst ég á annan notaðan á bland stuttu síðar sem ég bjargaði frá eigandanum og sit því uppi með 3 ofna...sem er fínt þegar er verið að bjóða nokkrum í mat ;)
Nýji vígður í dag, gaman að sjá hvað hann er hvítur...en þar sem ég elda beint á steininum verður hann fljótur að verða svartur og brenndur...sem gerir bargðið af botninum örlítið betra að mínu mati ;)
Síðan er alltaf draumurinn að hlaða pizzaofn...kannski maður verði sér út um einbýlishús fyrst...eða bara pizzastað ;)
þriðjudagur, desember 31, 2013
Annáll 2013

Ég hef gaman af því að fara yfir liðið ár og rifja upp helstu atriði. Ár er stærsta tímaeining sem ég nota og því finnst mér þetta alltaf skemmtilegt að fara yfir myndir ársins sem og allar blog-færslurnar hér.
Það virðist alltaf verða meira og meira að gera og minni og minni tími, enda ekki að búast við öðru þegar þessi 4 yndislegu börn stækka með hverju árinu. Ekki hjálpaði veikindatíð sem stóð síðasta vetur og vonandi verður aldrei aftur svona mikið af veikindum á heimilinu en Sindri átti erfitt að ná sér í ról og náði yfirleitt í eitthvað í hverjum mánuði.
Í upphafi árs var ég fenginn í smá Agile innleiðingu og hélt síðan námskeið um vorið sem heppnaðist vel og mjög lærdómsríkt. Auk þess var ég í stóru verkefni sem tók góðan tíma frá öðru stóran hluta af árinu en var jafnframt mjög skemmtilegt að halda utan um það og vinna í teyminu sem sá um það þó svo að vinnutíminn hafi oft ekki verið mjög fjölskylduvænn ;)
Einnig komst ég á námskeið hjá manni sem ég er búinn að vera að bíða eftir að kæmi aftur til landsins ;)
Þannig að draumar um frí áttu alveg rétt á sér. Helgamma kom um páskana sem var afskaplega notalegt og mörgum fannst erfitt að horfa á eftir henni í flugvélina.
Við skelltum okkur svo á Seyðisfjörð snemma um sumarið til að ná afmæli hjá Degi sem var ánægjulegt að hafa náð og náðum líka smá sól sem var ekki mikið að sýna sig fyrri sunnar. Skoðaði Tvísöng sem ég hafði aldrei séð og hafi séstaklega gaman af því að sjá hann líka hinu megin úr firðinum...svona eins og Barbapabbahús í fjallinu ;)
Fjallaskokk með Monsa var mjög skemmtilegt og hlakka ég til að taka það aftur næsta sumar.
Fjallaferð með Frænku í Lundarfarinu, afmælishátíð Hugins og gjörningur, dagsferð í Skálanes og margar góðar stundir í þessu annars frekar stutta fríi þar sem ég átti ekki mikið frí inni.
Réðst á baðið einn daginn sem var alveg kominn tími á...en þær framkvæmdir sem voru planaðar kláruðust nú ekki á árinu þannig að þetta verður nokkra ára framkvæmd =)
Ári eftir Brúðkaupspartýið skelltum við okkur í kósy ferð bara tvö sem var einstaklega notalegt.
Okkur tókst líka að hitta fólk og stunda smá félagslíf þar sem við fórum meðal annars 2 óvissuferðir, helgarferð í Veiðileysu og Hrekkjavöku.
Jólin komu svo í öllu sínu veldi þar sem dagatöl fjöskyldunnar, Bínu og mitt töldu niður dagana til jóla og áttum við gott jólafrí þar sem sleðaferðir og notalegheit voru ríkjandi.
Krílin kvöddu svo árið á Sævanginum í góðu yfirlæti og umkringd yndislegu fólki og áramótasprengjum sem krakkarnir fengu að skjóta upp...og Dagný reyndar aðeins of æst í þeim málum. Þegar að stóra kakan var komin út á götu var hún allt í einu búin að redda sér eld á stjörnublys og farin að kveikja á áður en að nokkur gat stoppað hana. Það fór þó allt vel og árið gekk í garð eins og önnur =)
Nokkrar sekúndur frá 2013
Hér er smá brot af 2013 í formi sekúndna sem er skeytt saman...ætla nú ekkert að taka sérstaklega fram hvaða forrit þetta var þar sem það er hálfgert drasl og ég mun ekki notað það aftur...en gaman að gera svona úttekt í þessu formi =)
Gámlársdagur

Rétt áður en við fórum í til Möllu&Þrastar á gamlárs náðum við mynd af okkur. Það er nú ekki alltaf sem við munum eftir því og ekki alltaf sem það tekst heldur að framkvæma það ;)
sunnudagur, desember 29, 2013
Sleðaferðir

Einstaklega vel hefur viðrað til sleðaferða og höfum við náð nokkrum ferðum. Stelpurnar hafa verið duglegastar að fara og náðum við einni ferð þar sem allir voru saman í dag. Brekkunar hjá Víðistaðatúni eru helsti staðurinn þar margir eru yfirleitt að renna og lítið sem hægt er að klessa á. Færið er reyndar aðeins of gott, búið að vera smá blautt og frysta þannig að það er ekkert sérstklega auðvellt að fóta sig...eða þægilegt þegar dottið =)
fimmtudagur, desember 26, 2013
Jólaboð á 2. í jólum
Það er árlegt jólaboð hjá Bödda&Bekku á annan í jólum þar sem systurnar og fjölskyldur mæta + Balli afi.
Það er alltaf gaman að hittast og einnig alltaf gaman að fá hangikjöt (sérstaklega ef það er bara einu sinni ;) Ekki verra þegar það eru nokkrar tegundir í boði og hægt að smakka munninn. Síðan er alltaf eitthvað fleira á boðstólum sem er hægt að gæða sér af...enda eru jólin til þess ;)
Síðan er alltaf sest til við Trivial keppni. Yfirleitt er það nú stelpur vs. strákar en á ár var einnig bætt við ungir vs. aldnir. Það var skemmtileg nýbreytni...en það er nú yfirleitt skemmtilegra í kynakeppninni þar sem þar er rifist svo skemmtilega mikið ;)
þriðjudagur, desember 24, 2013
Aðfangadagur 2013

Um morguninn fórum við að vanda til tengdó í morgunkakó. Þó svo við náum nú ekki að vera eldsnemma á ferðinni þá náðum vel við fyrir hádegi ;)
í hádeginu var það möndlugrautur en skammturinn var nú ekki stór þar sem ég bauð ekki uppá hann á Þorláksmessu í ár. Yfirleitt hef ég gert það til að fá þá í heimsókn sem eiga hjá mér pakka...en þar sem flestir voru komnir til skila þá sleppti ég þessu í ár...en passaði nú samt að elda nóg til að geta borðað í amk 2 daga ;)
Fjölskyldufólk kom svo í smá aðfangadagsheimsókn til tengdó með pakka og síðan heldum við heim á leið til að byrja að elda.
Allir voru klæddir, búið að leggja á borðið og við sest klukkan sex þegar að jólin gengu í garð.
Pakkar fylgdu svo eftir mikið át hjá þeim sem gáfu sér tíma í það og tókst okkur að komast nokkur greiðlega í gegnum þá.
Sumir voru orðnir þreyttir og þegar nokkrir tímar voru eftir af deginum voru flestir dottnir útaf.
Ánægjulegur dagur að vanda =)
fimmtudagur, desember 19, 2013
Sindri 3 ára

Hann er alltaf sami kallinn og grallarinn hann Sindri. Jafnframt er hann alltaf mesta barnið enda er hann borinn saman við hina litlu snillingana ;) En hann átti nú erfitt ár að baki þar sem hann var allt of reglulega veikur en hefur verið mun betri eftir sumar ( og fiskleysi ) þannig að þetta er allt á réttri leið.
En hann kann að stjórna fólkinu í kringum sig og fær yfirleitt það sem hann vill...með góðu eða með sínum leiðum ;)
þriðjudagur, desember 03, 2013
Jóladagatal Bínu 2013

Bína hefur undanfarin ár gefið mér bjór-jóladagatal og það var víst lögnu kominn tími til að ég útbjó dagatal handa henni líka =)
Ég fann útklippanlega pakka á netinu og rétt fyrir desember fór ég í að klippa þá út. Það hefði ég betur gert fyrr því þetta var mun meira verk ég hafði gert ráð fyrir og var ég langt fram á nótt að koma þessu öllu saman...en lærði líka í leiðinni að í hönnunina vantaði "vængi/flipa" á hliðarnar á lokinu sem ég bætti við og urðu kassarnir þá mun lokanlegri.
Það var því súkkulaði og annað góðgæri sem hún fékk á hverjum degi...og síðan var síðasti pakkinn með smá auka =)
mánudagur, desember 02, 2013
Jóladagatal Loga 2013

24 innpakkaðir...einn dag...þetta er hluti af jólunum & því að eiga yndislega konu =) Hún fékk meira að segja smá innanbúðaraðstoð í ár þannig að það ættu allir jólabjórarnir að hafa náð í pakkana...spennandi að sötra á þessu og sjá hver stendur uppi sem sigurvegarinn í ár ;)
sunnudagur, desember 01, 2013
Jóladagatal Krílanna 2013
Dagatalið í ár voru útklippt snjókorn yfir fjölskyldunni. Hver snjókorn var klippt út og allir lituðu sig í fjölskyldunni, snjókornin merkt og miðar með skemmtilegum atriðum sem fjölskyldan á að gera smeygt í gegnum götin og síðan sjókorn rifið uppá hverjum morgni af spenntum krökkum ;)Þetta er alltaf skemmtilegur undirbúningur fyrir jólin og margt sem við tökum uppá vegna þessa sem hefði annars aldrei verið gert...þannig að Bínu gerir jólin enn skemmtilegri hjá okkur =)
Þessi hugmynd fór meira að segja í fjöldaframleiðslu hjá vinafólki okkar fyrir jólin, þar sem sjókallinn frá því í fyrra var fyrirmyndin og gaman að sjá góða hugmynd komast inní fleiri fjölskyldur.
laugardagur, nóvember 30, 2013
Sunna bellerína

Sunna sýndi í dag í balletnum í síðasta tíma fyrir jól. Hún var búin að vera með okkur að horfa á systur sínu og steig svo á gólfið með sínum hóp. Alltaf jafn gaman að horfa á þessu dúkkulísu dansa og verður vonandi sem lengst í þessu =)
Dagný ballerína

Síðasti balletttíminn hjá Dagný fyrir jól og þá var slegið upp sýningu fyrir vini & vandamenn. Þær verða alltaf flottari með hverju árinu og gaman að skoða myndir frá þessum litlu ballerínum síðustu ár. Vonandi verða þær systur síðan einhverntíman saman á sviðinu enda eru þær farnar að sýna heima fyrir saman og eru flottar saman. Það er aldrei langt í sprellið hjá Dagný kátu =)
þriðjudagur, nóvember 05, 2013
Vinkonuafmælisveisla

Sunna & Elsa héldu saman uppá afmælið í dag og það var ekki leiðinlegt að geta hlaupið um og leikið með bekkjarfélögunum í Ævintýralandinu þar sem var haldið vel utan um alla.
föstudagur, nóvember 01, 2013
Hrekkjavaka 2013
laugardagur, október 26, 2013
Kósy á Hótel Geysi

Við fengum rómantíska ferð fyrir 2 í brúðkaupsgjöf fyrir ári og náðum loksins að skella okkur. Ferðinni var heitið á Hótel Geysi þar sem við áttum saman notalegar stundir bara tvö ein...merkilega sjaldan sem að það gerist hjá okkur ;)
Kuldi og myrkur og kósýheit sem var afsaklega ánægjulegt að eiga með Bínu minni...jafnvel náum við nú fleiri svona ferðum notalegum ferðum saman á næstunni...þó svo að við verðum nú líklega oftar en ekki með krakkana í för hvert sem við förum =)
mánudagur, október 21, 2013
Sunna 7 ára

Sunna er alltaf jafn yndileg og góð...þó hún geti líka alveg sýnt smá unglingastæla þá er það nú fyrirgefið fljótt þar sem hún er svo góð við alla í kringum sig. Það er líka kannski erfitt að vera svona góð alltaf ;)
Hún sver sig í Múlavegsættina og má oft sjá Rakel & Helgu í henni...sem er bara gaman að sjá andlitin í ættingjunum á heimilinu ;)
Á afmælidaginn var hún vakin í rúmminu við söng og fékk úlpu og ísvél...hún er smá ískellinging og það var efst á óskalistanum í ár...þá er eftir að vera dugleg við að læra á það og búa til okkar eigin ís =)
föstudagur, október 11, 2013
Dagný 5 ára

Hún gengur undir ýmsum nöfnum þessi elska: Dagný káta, Skrípó, Dagný sprengirós, Miss D... og hún er svo sannarlega vel að þeim komin. Það er aldrei lognmolla í kringum þessa skvísu og yndi að fylgjast með henni vaxa og dafna.
Á afmælisdagin var hún vöknuð þegar að fjölskyldan gekk út svefnherbergisganginn og söng afmælissönginn en þá var engin Dagný frammi...þá heyrist af litlu músíkröddi "Ég er inná klóóósetti". Höfðum við þá öll gengið framhjá henni án þess að taka eftir henni þar =)
Hún fékk græna úlpu og diskókúlu sem var efst á óskalistanum og mikil ánægja með...spurning hvort að Dagný diskó hafi ekki mætt á svæðið í framhaldinu...amk var hún fljót að skipuleggja diskó í Kaldárseli/leikskólanum og fór með hana einhverju seinna þangað og var diskó í náttfötum =)
Það er ekki hægt að búast við öðru en brosi frá henni...enda fæddist hún brosandi ;)
sunnudagur, september 29, 2013
Veiðileysa
Það var mikið étið eins og venjan er í svona ferðum og fór enginn svangur heim ;) Ég náði mér líka í góðan svefn svona þrátt fyrir að hafa næstum fryst aðra í herberginu með því að opna gluggann fyrir svefninn. Hlegið og keyrt og í alla staði frábær ferð og nokkrar myndir í september albúminu =)
laugardagur, september 14, 2013
Óvissuferð Bóner 2013
Pizzugerð, leikir, spil, út að leika, leigubílaferðir, út að borða og áfengisdrykkja...og sumir náðu að halda svo lengi að enda á balli. Fínasti dagur með góðu fólki =)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




