
Nornin, Ninjan, Ljónið & Fíllinn tilbúin í daginn.
Lifðu svo, sem þitt líf ætti að vara lánga stund og skamma









Bína hefur verið mjög dugleg að safna saman gullkornum krakkanna á síðunni þeirra og þegar komst upp um daginn að Balli afi hafði ekki séð neitt af þessu skelltum við þeim saman í eina "bók" sem er hægt að sækja og glugga í yfir hátíðirnar ;)
Árlega jólakveðja á netinu er tilbúin, hafið það gott og takk fyrir það sem er að liðna.
Ekki fórum við að höggva okkar eigið tré í ár en björgunarsveit Hafnarfjarðar fær í staðin okkar stuðning með jólatrjáskaupum. Það fékk að hvíla sig í eina nótt á svölunum og síðan þvegið og komið fyrir. Í ár var sérstaklega valið lítið tré þar sem vitað er að litli tætilíus mun ekki láta það í friði og fannst skárra að hafa það uppá borði til að reyna aðeins að erfiða fyrir honum að komast að því ;)
Búið að ná fram niðurstöðu í útliti á jólakortið í ár og prentun lokið...en það er ekki þar með sagt að þau verði skrifuð strax...hvað þá send...enda áttu þau í síðasta lagi að fara í póst í dag ;)
Litli herramaðurinn orðinn eins árs. Þar sem svo stutt var til jóla héldum við veislu fyrir nánustu og var það afskaplega notalegt. Það er oft full troðið þegar vinum og fjölskyldu er boðið saman...en það er einhvern vegin auðveldara á sumrin ;)
Sindri var bara sprækur og þótti ekki leiðinlegt þegar afi hans og langamma stjönuðu við hann. Síðan tók hann upp á því að ná sér í veikindi þegar leið á kvöldið og var í móki í nokkra daga...ekki alveg að hjálpa til með jólaundirbúninginn þau veikindi.
Stórball í Hörpu hjá vinnunni. Stelpurnar voru rosalega duglegar saman og voru 2 sjálfar á ferð út um allt í þvögunni. Þegar boðið var uppá gjafir fyrir utan salinn (í Hörpu) fóru þær fram og við á eftir...en fundum þær ekki. Endaði með að ég leit aftur í salinn og þar voru þær gráti næst við borðið okkar að reyna að skýra fyrir góðlátri konu hvað við hétum...þannig að þær voru týndar um stund...en höfðu hvor aðra ;)


Til pabba besta ♥♥♥
Frá Gáfnastrumpi
Sætu sól
Skrípóstelpunni
og desemberinu


Bína og krakkarnir dunduðu sér við í dag að búa til jóladagatalið á meðan ég var í vinnunni. Í ár er það snjókarl þar sem miðar daganna eru á maganum hans. 




...og það fer víst ekki á milli mála hvert við förum ;) Enda náum við alltaf í 2 fyrir 1 og þegar við drekkum hvorugt rauðvín þá er þetta mjög hagkvæmt...jafnvel ódýrar að fara 2 svona fínt út að borða heldur en að fara með alla fjölskylduna á einhvern skyndibita...enda er ekkert ódýrt í dag =)









