
Hún er algjört yndi. Á hverjum morgni les Bjartur hvað á að gera og þegar allir eru komnir heim er sameinast í að gera það. Afskaplega skemmtileg að hafa svona sem tryggir að allir geri eitthvað saman =)
Lifðu svo, sem þitt líf ætti að vara lánga stund og skamma

Sunna Sæta Sól varð loksins 4 ára í dag. Hún er búin að bíða allt árið eftir þessum degi. Hún er alltaf jafn yndisleg þessi litla elska eins og hún hefur alltaf verið frá því hún kom. Hún var vakin með gjöfum og fékk svo að baka köku í leikskólanum og ráða svoldið. Um kvöldið fékk hún að ráða hvað væri í matinn...ömmu&afa var boðið í súrmjólk með cherios (sem er uppáhaldið þessa dagana). Ekki fengu/þurftu nú allir að borða afmælismatinn hennar ;)
Finnst svo stutt síðan Dagný mætti að það er merkilegt að hún er orðin 2ja ára og verðandi stóra systir. Í tilefni afmælisins var hún vakin með gjöfum: teikniborð frá krökkunum og púðastól frá foreldrunum. Hún var hin kátasta með allt, enda ekki við öðru að búast frá henni; hún er alltaf svo hress og kát. Þó hún sé lítilli 2ja ára heldur hún að hún sé 4 ára verðandi 6 ára. Það hefur sína kosti að alast upp með stórum systkinum og hluti af uppeldi hennar hefur verið frá Sunnu. Alveg magnað hvað þær eru góðar vinkonur og sú yngri apar allt eftir hinni. Þannig að það mætti segja að hamingjan skíni af henni alla daga...í það minnsta er alltaf mikið líf í kringum hana og hún alltaf til í að lífga uppá partýið =)
Mig hefur dreymt lengi um að sjá Magna spila tónleika til heiðurs Pearl Jam. Í byrjun sumars missti ég af þeim tónleikum en þeir voru endurteknir í kvöld. Leit nú reyndar ekki út fyrir að ég kæmist en það reddaðist allt að lokum og þökk sé fleirum áhugasömum drattaðist ég niður i miðbæ Reykjavíkur uppúr miðnætti.
Pókerklúbbinn vantaði logo og ég var beðinn um að kokka eitthvað saman. Datt strax í hug að hafa stafina ofan á útlinum Bjólfs og hripaði niður hugmyndina.
Þannig að virðulegi klúbburinn er kominn með logo fyrir veturinn og gaman að sjá hvernig rissuhugmyndin varð að veruleika...maður gerir of lítið af því að skjalfesta allt sem maður tekur sér fyrir hendur.
Fórum í kaffi í Karrakot hjá Möllu og Þresti. Síðar um daginn komu Valgeir & Þyri. Einnig bættust við Nonni & Berglind & co. Bjartur var hæstánægður að fá strákana í heimsókn í bústaðinn og voru þeir Emil Gauti alveg týndir í leikjum.
MU með Monsa og co. Keypti árskort, á ábyggilega eftir að nýta það í vetur líka með krakkaskarann, þannig að það er um að gera að prófa þetta og þeim finnst miklu meira gaman að geta farið aftur og aftur í tækin, sérstaklega þegar það er ekki stappað í garðinum að geta hoppað milli tækja án þess að þurfa að bíða í röð.

Bjartur útskrifaðist í dag af leikskólanum. Salurinn var fullur af stoltum foreldrum þegar Álfarnir (elstu bekkingar) héldu tónleika þ.s. þau sungu hvert lagið á fætur öðru við fögnuð áhorfenda. Síðan fengu þau útskriftarplagg og þegar allir voru byrjaði að gæða sér að kræsingum fékk hver og einn möppu með myndum, teikningum og fleiru sem þau hafa gert síðan þau byrjuðu á Víðivöllum.Takk kæra starfsfólk Umferðarstofu fyrir mig=)
Krakkarnir fengu að fara baksviðs í leikhúsið hjá Halli afa fyrir síðustu sýninguna á Oliver. Bjartur var búinn að Hall til að sýna sér sviðsmyndina þ.s. hann hafði svo gaman af síðust heimsókn í leikhúsið. Við fengum að sitja út í sal og fylgjast með söngupphitun hjá krökkunum og höfðu allir gaman af. Bjartur hafði farið með okkur áður að sjá sýninguna og hafði mestan áhuga á leikmyndinni og öllu sem finna mátti baksviðs. Stelpurnar sátu saman og voru bara augun að horfa á alla krakkana dansa og syngja.Ólíver, Ólíver. Spurning hvort þær verði einhverntíman syngjandi á sviði...undir stjórn stóra bróðurs ;)
Í morgun fengu allir að leita að páskaeggjunum sínum. Allir fengu vísbendingar sem leiddu á aðrar vísbendingar og á endanum fundu allir eggið sitt. Bjartur var ekki par sáttur við að hafa ekki fengið að fela eggin með mér í morgun en þ.s. ég var snemma á fótum hafði ég falið þau. En hann tók því nú bara nokkuð vel og fór í staðin að útbúa vísbendingar handa mér. Eins mikill snillingur og hann er þá átti ég nú ekki von á að hann gæti skipulagt þetta fram í tímann þannig að röðin á vísbendingunum yrði rétt. En vitir menn, hann er ekki snillingur fyrir ekki neitt ;) Þetta var ótrúlega góður vísbendingaleikur hjá honum og hérna er hægt að sjá myndir af leiknum.
Pönkþemað í vinnunni í dag var alveg magnað. Tiltektardagurinn fór alveg út um þúfur á öllum hæðum þegar pönkararnir af 2. hæðinni gengu berseksgang um húsið. Við héldum nú aðallega til í æfingarhúsnæðinu sem við innréttuðum utan um pönkhljómsveina okkar FOKKYOU. Allir á hæðinni voru meðlimir eða grúppíur/rótarar og var rokkað fram eftir degi. Aðalfundur starfsmannafélagsins var svo eftir vinnu þar sem hörðustu partýdýrin héldu stuðinu áfram langt fram eftir kvöldi og héldum svo innreið í bæinn...

Ég er með þungan maga=)
Síðustu ár höfum við sjálf séð um jólamyndatökuna, en það er orðið svoldið mál að ná 3 krökkum í uppstillingu og það er nánast ógjörningur að reyna að ná okkur með. Þannig að í ár ákváðum við að fara í myndatöku og láta annan um þetta. Það er afskaplega þægilegt að láta bara stilla sér upp og skjóta af sér myndir. Svo fær maður afraksturinn bara sendan, búið að taka út draslið. Heilmikill vinnusparnaður og verður ábyggilega gert á hverju ári...þótt við munum nú jafnvel líka reyna að taka myndir sjálf þ.s. við höfum merkilega gaman af því að reyna að stilla öllum upp og frábært ef maður veit að til eru góðar myndir þannig að það þarf ekkert að koma út úr myndatökunni =)
Bjartur var afskaplega duglegur framan af myndatökunni. Þegar fór að líða á varð orðið erfitt að halda athygli og hann ekki að nenna þessu lengur. Dagný var ósofin og ekki að nenna þessu. Náðust samt alveg myndir af henni líka þótt hún hafi nú ekki verið að sýna sitt besta. Sunna var eins og engill allan tímann og ótrúlega dugleg. Fékk hún ís að launum eftir myndatökuna á meðan hinir gríslingarnir urðu að bíða út í bíl.
Sunna sæta sól 3ja ára í dag og merkilegt að hún er ekki eldri því stundum finnst mér hún eitthvað svo fullorðin. Þessi litla skvísa sem vekur eftirtekt hvar sem hún fer og stundum alveg merkilegt hvað fólk er hrifið af henni án þess að hún sé eitthvað að bjóða sig. Hún virðist hafa eitthvað aðdráttarafl stelpan sem passar ágætlega við hversu félagslind hún er, og hefur reyndar alltaf verið. Kannski ekkert skrítið þar sem hún á stóran bróður og byrjaði á leikskóla áður en hún varð eins árs. Kannski er það bara ég en hún hefur alltaf virkað afskaplega opin á mig og einhvernvegin sé ég hana alltaf fyrir að baða sig í sviðsljósinu í framtíðinni ;)

Þar sem veður var svo fínt stakk ég snemma af úr vinnunni og við fórum í bústað í Grímsnesinu með Bödda&Bekku og co.
Sóttum tjaldvagn út í Norðursíld með hjálp frá Monsa.
Skellti mér í sláttur á brekkunni við Múlaveginn. Ekki klukkutíma verk og tók samt bara vel á, endaði auðvitað ber að ofan við að heyja( enda er ég perri ;).
Strákarnir( Bjartur, Kristján og Leifur ) fóru að veiða með mér og Braga út á Bræðslubryggju. Bjartur náði 2 litlum( einum Marhnút eftir að hafa spurt hvernig hann liti út, ég sagði honum að þeir væru ljótir fiskar en hann var nokkuð ánægður með hvað þessi litli var lítill og sætur =) Bragi náði svo einum vænum og einn mávur lenti í lífshættu þegar hann flæktist og var húkkaður í en slapp eftir að hoppa fram af bryggjunni og ná einhvernvegin að losa sig í leiðinni.
Fórum á uppskeruhátið Lunga. Dagný var reyndar vökuð þannig að ég missti af seinni hlutanum, en lék bara við hana frammi á meðan.
Í dag fækkaði syngurum þegar að Eyrún & Jobbi gengu í það heilaga...ég og Bína förum að verða með síðasta ógifta fólkinu í hópnum eftir að við seinkuðum giftingu ótímabundið þegar að Dagný kom undir.
Haldið var uppá 5 ára afmæli Bjarts í dag. Ástæða þess að það var haldið daginn fyrir afmælisdaginn var að Sunnu á bókaðan tíma í nefkirtlatöku í fyrramálið og gengur ekki alveg að halda afmæli sama dag. Afmælið tókst bara vel og var stóri strákurinn hæstánægður með allar fínu gjafirnar, veisluna og afmæliskökuna.Merkilegt að maður á FIMM ára strák...enda er maður orðinn gamall ;)